19júlí

jæja þá

Dagurinn í gær var svo góður. Ég er nýkomin frá Austurríki svo ég er ekki búin að hitta mömmu lengi svo mamma alveg dekraði við mig. Vakti mig kl 11 og var búin að fara í bakarí og búa til nýpressaðann appelsínusafa fyrir mig. mmmmhhh, en indælt. Svo fórum við Rúna í sund og sóluðum okkur svo uppá svölum hjá henni með boost í góða veðrinu. Mér finnst alveg frábært hvað sumarið er búið að vera gott.

Eg var að frétta að eini skósmiðurinn á Akureyri er að hætta! jiii minn. hvar á ég þá að fara með skó í viðgerð..vesen.

En tilgangurinn með þessu bloggi er það að ég er að segja því upp. Allavega í bili. Held við höfum gott á smá pásu.
Svo þangað til næst!

Anna Guðrún
19. júlí 2007 klukkan 11:58
anna og hulda
3 athugasemdir
02júní

Ég og pabbi sátum í rólegheitum áðan inní eldhúsi að lesa blöðin. Allt í einu glaðnar yfir pabba og hann les upphátt eina fyrisögn:

,,MOTTA FRÁ MAROKKÓ ER Á VIÐ GOTT FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ"

svo stekkur pabbi upp og sækir penna og strikar undir eftirfarandi orð meðan hann les ennþá upphátt, mér til mikillar gleði :

-...eins keypti ég mér forláta mottu í Marokkó um daginn...
-...ég held ég hafi látið platað mig illa í þessum mottuviðskiptum..
-...ætli ég hafi ekki borgað aðeins of mikið fyrir hana, eiginlega látið féfletta mig...

Þá er það orðið opinbert, ég lét féfletta mig. Djöfullinn!

Anna Guðrún.

02. júní 2007 klukkan 11:50
anna og hulda
10 athugasemdir
18maí

ný færsla

Haha já Anna mín þetta var orðið svolítið vandræðalegt. en þið takið þetta næst. þó það verði ekkert næst en só what....

ég hlakka svo til eftir prófin að ég get ekki beðið! vá hvað ég hlakka til. vá
18. maí 2007 klukkan 01:10
anna og hulda
1 athugasemd
22apríl

kosningar

fokk ég er að klúðra áróðrinum mínum....allavega, takið vel eftir:

BIRNA Í FORMANN
ANNA HAFF Í VARAFORMANN
HULDA RÚN Í MEÐSTJÓRNANDA
SANDRA Í RITARA

okei?

og stelpur ef þið vinnið þá vil ég smá þakkaræðu frá ykkur ;) okei great
22. apríl 2007 klukkan 19:05
anna og hulda
4 athugasemdir
11apríl

páskarnir búnir og ég orðin veik. frábært

Gleðiliega páska allir. Páskafríið var ágætt. Betra en ég bjóst við. Var að vinna, þóttist vera að læra og lék við Margréti og svo Lindu þegar hún kom heim. Við erum helvíti gott þríeyki sé ég..hehe. Við fórum út á lífið og skemmtum okkur konunglega í miðbæ Akureyrar. Hann á nú sínar góðu hliðar.
Á mánudaginn fórum við í road trip til Reykjavíkur til að hitta okkar heittelskuðu (og þá er ég að tala um stelpurnar sem stungu af til útlanda) og síðast en ekki síst, á tónleika með Björk og Hot chip! sjitt það var svo gaman! vá! svo tók við jahh ekket svo skemmtileg ferð heim...þar sem ég var komin með ælupest og beinverki. jéee. vá ég hef aldrei verið jafn fegin að komast heim! en þá tók við hiti líka. frábær endir á páskafríi. Vona að ég nái mér fyrir helgina þar sem söngvakeppnin er og Birna beib að syngja! jii. hlakka geggjað til! :)

En út í annað. Ég held að ég sé komin út í þann pakka að eiga mömmu sem kaupir á mann ljóta sokka. eða allavega mjög vafasama sokka. hehe, þeir voru reyndar mjög mjúkir, en agalega spes. Hún skipti þeim síðan í bleika mjúka sokka. Ég er í þeim núna, þeir eru voða góðir en agalega bleikir. Það fer ekki fram hjá neinum.



Já þið ættuð að passa ykkur á þessum!


11. apríl 2007 klukkan 19:34
anna og hulda
10 athugasemdir
30mars

London, París, Róm........

Jahá, þá er komið að því. Flestir sem ég þekki þykjast vera voða kúl að yfirgefa Akureyri um páskana. Iss piss. Við Magga beib verðum þær einu sem verða hér eftir í siðmenningunni og ætlum að gera allt vitlaust. Enda ekkert meira kúl en það.
En stelpur ég ætla bara að minna ykkur á það að þið eigið eftir að gefa mér afmælisgjöf ;) haha

Ég er loksins komin í páskafrí! ó svo ljúft. Ég ætla að vinna og sofa og þykist ætla að læra. Svo það verður ógeðslega gaman hjá mér í fríinu. Ég þarf enga sixtínsku kapellu né oxford street og hvað þá effelturn til að gleðjast yfir.

Skemmtilegt afmæli sem ég fór í í gær. Frír bjór á karólínu og læti. Það endaði spes en þó var mjög gaman. Frábært eftirpartí allavega ;)

Gleðilega páska krakkar! og stelpur, skemmtið ykkur í útlandinu.



Anna

30. mars 2007 klukkan 19:24
anna og hulda
7 athugasemdir
28mars

babylove

ég fékk alltieinu mikla löngun til að blogga hér, þó að fríða frænka standi nú alltaf fyrir sínu þá minnir þessi síða mig svo á sumarið þar sem hún var búin til stuttu eftir að viss aðili var endurheimtur frá brasilíu.
í dag var svo sannarlega sumardagur, ég gat loksins verið með stór sólgleraugu og í pilsi, án þess að líða einsog hálvita.
en mæómæ hvað það styttist í páskafrí og ég er ekki frá því að þetta verði besta páskafrí ævi minnar fyrst ég það London og Róm og svo þegar ég kem heim er það BJÖRK og HOT CHIP:D allamalla ÉG  hlakka svo til! svo þegar við komum heim eru bara nokkrir dagar í söngvakeppnina hiphoalula!
svo er óvænt teiti þar á eftir...
svo er bara endalaus gleði fram að prófum það er að segja.
Svo eftir prófin eru mamma og pabbi önnu að fara út svo við verðum einar heima þar strax helgina eftir prófin, partý?
en svo tekur víst við erfiðisvinna á eddunni, reyndar hellingur af peningum, svo danmörk í viku ogogog...... ÚTSKRIFTAFERÐ!
já svona er ísland í dag.

góðir tímar
-hulda rún
28. mars 2007 klukkan 17:35
anna og hulda
4 athugasemdir
20mars

rómantík

Ég var að skoða dagbókina mína frá Brasilíu um daginn og rakst á eitt skemmtilegt. Þetta var semsagt þegar ég var nýkomin út og skyldi mjög lítið og talaði eiginlega ekkert og var með orðabókina mína með mér hvert sem ég fór. Allavega, þá fór ég á bar með Juliönu systur minni og einhverjum vinkonum og frænkum og þar hittum við vini þeirra. Allir voru náttúrulega voða spenntir fyrir mér og vildu tala við íslensku stelpuna. Svolítið pirrandi samt þar sem að ég gat ekkert talað. Svo var einn þeirra sem byrjaði að tjá ást sína á mér og tók orðabókina mína og byrjaði að senda mér miða á ensku. (by the way þá talaði hann enga ensku, notaði bara orðabókina) allavega hljómuðu miðarnir svona. Hann skrifaði þetta sko á servíettu.

,,You are light is ray,star and moonlight."

   Vinicius.

Svo voru fleiri:

,,I like you so much."
,,you are very beautiful!!!! but I'm sorry.....I liked liked liked so much....kisses "
,,Answer me???"

Ég náttúrulega bara hló og varð vandræðaleg. Svo fékk ég miða frá öðrum:

,,Lyke him?"

Í GUÐANNA BÆNUM!
hehe, góðir tímar. Brasilísku strákarnir eru svo rómantískir.

Ég er farin að borða. bæ
20. mars 2007 klukkan 19:58
anna og hulda
11 athugasemdir
14mars

já það er erfitt að vera kvenmaður

Ég hugsa þetta í hvert skipti og bölva innan með mér þegar ég vaxa á mér lappirnar. Af hverju getur bara ekki þótt fallegt að vera loðin?! Þetta þykur mér alveg pirrandi. Mér finnst samt persónulega ljótt að vera kafloðin ef þú ert kvenmaður en ég vildi óska að mér þætti það fallegt. Og að öllum þætti það fallegt! semsagt, að það þætti fallegt. Ætli þetta hafi alltaf verið svona? já þetta er eitthvað til að hugsa um.

Ratatoskur var í skólanum á mánudag og þriðjudag. Það var ágætt. Ég fór á innflytjenda fyrirlestur, SÁÁ fyrirlestur og langaði helst til að labba út á miðjum fyrirlestri, nordjobb kynningu (langaði til að skjóta konuna, hún talaði svo lengi og mikið.), og svo AFS kynningu því mig vantaði bara eitt í viðbót. Svona þemadagar eru skemmtilegir nema hvað að ég nenni aldrei að stökkva upp og frekjast í röð til að ná í það sem er spennandi og manni langar á svo ég enda alltaf bara á einhverju. Það er svosem fínt.

En heyrðu þá er bara aftur alveg að  koma helgi! jeij. Þó ég ætli mér nú ekki að gera neitt sérstakt þessa helgi en þið vitið hvernig það endaði síðast svo hver veit. Nú á ég samt virkilega ekki pening frekar en fyrri daginn svo ég ætla að chilla bara. á rúntinu jafnvel því það er svo kúl. sjáum til.

Ein mynd til að lífga upp á þetta. þó hún eigi ekkert við en jæja.



ég að stökkva út í amazon river

Þangað til næst!

Anna Guðrún
14. mars 2007 klukkan 23:29
anna og hulda
7 athugasemdir
10mars

Ég fór að horfa á skólahreysti í höllinni á fimmtudaginn. Það var pínu gaman sko...en allavega, mér finnst þetta svolítið sniðug keppni. Hún var ekki þegar ég var í grunnskóla en ég er nokkuð viss um að Lundarskóli hefði rústað þessu þá! það var svo mikið um íþróttafólk, allavega í okkar árgangi og hinum örugglega líka. En hvað um það...allir skólar á Akureyri voru þarna NEMA lundarskóli! jii, er Lundarskóli núna endanlega farinn til fjandans? við sem vorum svo góðir krakkar.
Við vorum að tala um um daginn hvað það væri fyndið að koma inn í lundarskóla núna bara í frímó eða eitthvað, setjast á eitt hringborðið og djamma. Ég man að maður pantaði alltaf að vera ekki á stöng, svo fórum við oft í handaleikinn. Góðir tímar...eða hvað? Mér fannst samt alveg gaman í grunnskóla, þó að við grúbban góða vorum svolítið einangraður hópur. en hver er það ekki.
Þegar ég var á skólahreysti var ég aðeins að horfa í kringum mig og mér fannst krakkarnir allir vera svo ungir og litlir eiitthvað. ég man hvað ég var alltaf stór og þroskuð. sérstaklega þegar ég var búin að fermast! vá! þá var ég nú aldeilis lífsreynd. En talandi um fermingar, núna er alltaf verið að auglýsa fermingarföt og brúnkumeðferðir og neglur og allt sem maður þarf víst til að vera sætur í dag. mér verður alltaf hugsað til fermingarinnar minnar með hryllingi! ég var í svo ljótum fötum! oj barasta. og gaman að því að þá vorum við Hulda einmitt í eins kjólum og skóm. sjitt en hallærislegar...hehe

En talandi um fokking grúbbuna (eins og ég kýs að kalla okkur), þá var grúbbukvöld í gær. vorum búnar að ákveða að hafa það eins og í gamla daga með geðveikt mikið nammi og horfa á spólu eða eitthvað en nei, við borðuðum saman ljúffengan mat, fórum svo niður í kjallara og fórum í -bókina með svörin- leiki. oooog svo endaði kvöldið í bjór niðrá Dáta. typical. en það var samt gaman.

Hey eitt, ég spurði bókina með svörin hvort ég myndi eignast kærasta áður en ég klára menntaskólann og hún sagði : það verður þér dýrkeypt.
djöfullinn. hehe

bæjó
10. mars 2007 klukkan 18:53
anna og hulda
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

gott lag

gusgus-why

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

er glasið hálffullt eða hálftómt?